Hlutur til sölu

3. apr., kl. 14:48 | Kristján Þór Zoega

Hlutur laus til sölu hjá okkur í Lágflugi, frábært tækifæri fyrir atvinnuflugmannsnema og einkaflugmenn til að fá ódýra flugtíma.
Upplýsingar fást í síma 660-1720 og á stjorn@lagflug.is



Hóp-/ljósmyndaflug

24. feb., kl. 22:55 | Margrét Linnet

Ecureuil þyrla NorðurflugsNokkrir meðlimir Lágflugs skelltu sér í loftið í dag í hópflug/ljósmyndaflug. Áhugaljósmyndari í röðum meðlima var fenginn til að taka myndir og vorum við svo heppin að hann fékk að sita í Ecureuil þyrlu Norðurflugs og taka myndir úr henni. Allt gekk eins og í sögu og tók þetta ekki langan tíma þar sem vanur myndatökuflugmaður flaug þyrlunni.



Gleðilega hátið

19. des., kl. 23:30 | Margrét Linnet

Jólakort Lágflugs 2007Lágflug óskar félagsmönnum jafnt sem öðrum flugmönnum og flugáhugamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju komandi ári.



Jólaglögg Lágflugs

12. des., kl. 12:33 | Margrét Linnet

Jólaglögg Lágflugs verður haldið laugardaginn 15.des næstkomandi.

Vonumst til að sjá sem flesta til að fagna komu jólanna með okkur.

Allar frekari upplýsingar eru á spjallvef klúbbsins og hefur verið sent til félagsmanna.



TF-LAG orðin IFR

3. nóv., kl. 21:53 | Margrét Linnet

TF-LAGTF-LAG fékk IFR stimpilinn sinn í síðasta mánuði :) Mun þetta nýtast félagsmönnum okkar til góða í tímasöfnun og safna blindflugstímum.
Hvetjum við fólk til að fara varlega þegar það fer á heimild á eins hreyfils flugvél :)



Flugklúbburinn Lágflug, Fluggörðum, Reykjavíkurflugvelli | stjorn@lagflug.is | Vefstjóri


Valid XHTML 1.0! Valid CSS! Get Firefox!